Bleika Boðið 2026
Okkar stærsta hátíð og fjáröflunar viðburður verður haldinn föstudagskvöldið 9.október á Hótel Selfossi.
Undanfarin ár hefur verið húsfylli og mikil gleði!
Aðgangseyrir 3.500 kr.
Húsið opnar kl.19:00, 100 fyrstu konurnar og 50 fyrstu karlarnir fá gjafapoka frá Kappahl. Dagskrá hefst kl.20:00, tilboð á drykkjum og girnilegar veitingar í boði Veitingastaðar Hótel Selfoss.
Uppboðin verða á sínum stað og Happdrættið okkar verður glæsilegt að venju, hver miði kostar einungis 2.500 krónur og er til svo gríðarlega mikils að vinna.
Veislustjóri kvöldsins verður okkar eini sanni Gabríel Werner, Anna Margrét hjúkrunarfræðingur slær á létta strengi og Bleika bandið Bland og vinir spila fyrir dansi.
Athugið að ef um stærri hópa er að ræða, er mögulegt að panta borð fyrirfram með því að senda tölvupóst á arnessysla@krabb.is
Við hlökkum mikið til að eiga skemmtilegt kvöld með ykkur!
Krabbameinsfélag Árnessýslu










Comments