top of page
Search

Gleði og samstaða á Bleika Boðinu

10 hours ago
2 min read

Bleika boðið var haldið á vegum Krabbameinsfélags Árnessýslu, í áttunda sinn þann 9.október síðastliðinn. Viðburðurinn fór fram á Hótel Selfossi sem hefur hýst viðburðinn og stutt dyggilega við félagið síðastliðin sjö ár.


Stemmningin var góð í vel skreyttum sal sem Tilefni.is sáu um að gera bleikan og fallegan, veitingar frá veitingastað Hótel Selfossi voru að vanda girnilegar og bragðgóðar og fær starfsfólk og stjórnendur Hótelsins margfaldar þakkir fyrir hjálpsemi og góða þjónustu. Veislustjóri kvöldins var Gabríel Werner og sá hann, ásamt félagsmönnum, um að draga út rúmlega hundrað happdrættisvinninga sem hver af öðrum var glæsilegri. Happdrættisvinningar komu frá öllum mögulegum fyrirtækjum og verslunum í samfélaginu okkar en einnig víðar og er einstakt að finna velvilja til félagsins teygja sig svo langt út fyrir bæjarmörkin. Kappahl gaf fyrstu hundrað konunum og fimmtíu körlunum kvöldins gjafapoka við komu á viðburðinn. Gabríel hafði farið víða í samfélaginu dagana fyrir viðburðinn og setti saman myndband sem sýnir samstöðu og samhug gagnvart málstaðnum og starfsemi félagsins. Anna Margrét hjúkrunarfræðingur mætti á svið og hafði frá skemmtilegum sögum að segja af lífinu sem miðaldra kona.    


Í fyrsta sinn steig heil hljómsveit á svið á Bleika boðinu. Strákarnir í Bland og Vinir mættu með allar sínar græjur og fengu auk þess búnað frá EB Hljóðkerfi til að bæta hljóðgæðin. Fullmönnuð hljómsveit var síðan toppuð með leynigest en tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heimisson  steig á svið með hljómsveitinni sem spilaði hvern slagarann á fætur öðrum.


Viðburðurinn er stærsti fjáröflunarviðburður félagsins og gefa allir sem að kvöldinu koma, vinnu sína til styrktar félagsins. Alls mættu um þrjú hundruð manns á Bleika boðið 2026 og söfnuðust um tvær milljónir króna sem alfarið verða nýttar í þjónustu við félagsmenn. Hundrað og fimm fyrirtæki, einstaklingar og verslanir lögðu viðburðinum lið á einn eða annan hátt og er þeim öllum færðar kærar þakkir fyrir.


Gestir kvöldsins voru heilt yfir ángæðir með viðburðinn og margir hverjir hafa mætt á Bleika boðið ár hvert.


Krabbameinsfélag Árnessýslu sendir öllum innilegar þakkir fyrir góða samveru og gríðarlega góða samvinnu með hagsmuni félagsmanna og starfsemi félagsins að leiðarljósi.


Hér má sjá nokkrar myndir frá Bleika boðinu og nokkrar skemmtilegar myndir af gestum sem nýttu sér myndakassann frá Glansmyndir.




 
 
 

Comments


  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram

Krabbameinfélag Árnessýslu

Reikningsupplýsingar:

325-26-430797

kt. 430797-2209

Þökkum stuðninginn

© 2021 Krabbameinfélag Árnessýslu.
Framkvæmd og öryggi aðstoðað af Wix

Hafa samband

Sendu okkur skilaboð

Takk fyrir að hafa samband!

bottom of page