Herrakvöld í Mottumars
- Svanhildur Olafsdottir
- 1 day ago
- 1 min read
Föstudagskvöldið 27.mars 2026 stóð Krabbameinsfélag Árnessýslu fyrir Herrakvöldi í Tryggvaskála á Selfossi.
Fjölmargir herramenn nutu kvöldsins saman undir góðri veislustjórn okkar trygga og einstaka Gabríels Werner, en hann hefur í gegnum tíðina veislustýrt fjölmörgum viðburðum á vegum félagsins.
Grétar Lárus Matthíasson tónlistarmaður mætti með gítarinn og flutti frumsamin lög af plötunni sinni Unbreakable í bland við klassíska slagara. Meðal gesta voru einnig tónlistarmenn sem brugðu óvænt á svið með söng og píanóflutning.
Starfsfólk Tryggvaskála reiddi fram dýrindis kótilettur og stjanaði við herramennina með góðri þjónustu.
Dregnir voru út margir veglegir happadrættisvinningar, mikið var hlegið, spjallað og glaðst í hópi góðra vina og félaga.
Viðburðurinn var hluti af fjáröflunarliðum félagsins og söfnuðust rúmar fjögurhundruð þúsund sem varið verður til þjónustu við félagsmenn.








Comments