Málverkið Krunk Krunk afhent
- Svanhildur Olafsdottir
- 13 minutes ago
- 1 min read
Málverkið Krunk Krunk eftir Ingvar Thor hefur verið afhent kaupendum sínum, hjónunum Hólmfríði Helgu Gunnlaugsdóttur og Ágústi Hallvarðssyni.
Málverkið var gjöf frá Ingvari Thor til styrktar starfsemi félagsins og var selt á uppboði sem Gallery Listasel á Selfossi sá um fyrir hönd félagsins.
Krabbameinsfélag Árnessýslu óskar þeim Hólmfríði og Ágústi til hamingju með glæsilega listaverkið. Innilegar þakkir einnig til Gallerí Listasel fyrir einstaka samvinnu og velvilja í garð félagsins og sömuleiðis Ingvari Thor listmálara fyrir ríkulegan styrk til félagsins.





Comments